26.3.2008 | 08:25
Bingó og Sumarbústaður
Jæja þá gefur maður sér smá stund til að blogga. Ég átti góða páskahelgi. Hún byrjaði á því að ég fór ásamt Ólöfu systir og fleirum á bingó. Sjaldan er ég heppin á þeim samkomum en finnst alltaf gaman að fara á páska og jólabingó sem haldin eru af kvenfélögum og öðrum. Síðast þegar ég vann fyrir jólin 2002 þá bjó ég á Djúpavogi og fór með Guðný Björgu og heim fór ég með fullt af jólaseríum, lakkrís (fyrir utan það sem við vorum búnar að borða) og svo peningaúttekt í versluninni hjá Bríet. Núna síðasta miðvikudagskveld fór ég heim með 2 matarkörfur (sem innihalda stóru læri með öllu meðlæti, snakki, konfekti, ostum og gosi) síðan vann ég 12 manna marsípantertu og fullt af kremum frá Bláa-lóninu (húðin mín verður sko ekkert smá mjúk og fín og unglegri eftir að hafa notað þessi krem maður) Tertuna sæki ég svo næst þegar ég held veislu hehe.
Svo var haldið í Sumarbústaðinn sem er í Helludal sem er á bak við Geysir. Veðrið var frábært. Við áttum að koma með okkar nýja og flotta grill sem reyndist vanta einhver ósköp í þannig að við þurftum að fara í bæinn og fá lánað hjá Kidda til að geta grillað en þau voru einmitt með þennan bústað að láni Þetta var fínasti bústaður ef maður mínusar aðbúnað sem ég nenni ekki að telja upp hér. Við sváfum á vindsæng sem er allt í lagi í tvær nætur en 4 kannski einum of þannig að maður kom smá skakkur heim. Þarna var lítið fell sem ég skreið uppá og held áfram að safna hólum, fellum og fjöllum þetta árið Magga og Kiddi takk fyrir að bjóða okkur þið eruð frábær.
Athugasemdir
takk sömuleiðis
Margrét M, 26.3.2008 kl. 10:59
amms takk en þetta var ekki fjall þetta var lítið stærra en arnarhóll eina sem vantaði var rúllustigi
Kristberg Snjólfsson, 26.3.2008 kl. 14:36
Enda sagði ég lítið fell. Spurning hvort þú hefðir komið með ef það hefði verið rúllustigi :)
Kristín Jóhannesdóttir, 26.3.2008 kl. 14:50
nei það var of kalt
Kristberg Snjólfsson, 26.3.2008 kl. 15:21
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.