Í dag er yngir sonurinn 24 ára

Þá er það næsta afmæli en yngri sonur minn hann Jóhannes Mundi er 24 ára í dag. Skrítið hvað börnin mans eldast en manni finnst maður lítið eldast sjálfur. Jói Njóttu dagsins í botn og TIL HAMINGJU.

Nú er ég búin að vera í ömmuleik frá því í aðfararnótt fimmtudags og verð það áfram fram á sunnudagskvöld. Anna María er í Noregi og Gunnþór að vinna. Gengur þetta  bara mjög vel. Ákveðin lítil dama hér á ferð. Var með okkur í vinnunni í morgun og þá áttaði maður sig á því hvað hún er lítil þegar hún var að reyna að burðast með litla saltfiska hehe. Núna eftir hádegi ætlar Ólöf systir að passa hana svo við getum pakkað ferskum fisk í kassa á Belgíu.

Stjörnuspá - 5. febrúar 2010
fyrir 21. apríl 1966

Þú ert næm á fegurð og ást, því Tunglið er að örva ástargyðjuna Venus og um leið tilfinningar þínar. Þetta er gott fyrir samskipti. Notaðu tækifærið og hafðu samband við vini þína eða þá sem þú vilt heilla og skrúfaðu frá sjarmanum. Nú er málið að njóta lífsins. (Tungl 120 gráður Venus)

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Til hamingju með soninn. Allt gott að frétta héðan ,að því undanskildu

að við hjónin erum með einhverja pest. Við erum samtaka í þessu.

seylubúarnir (IP-tala skráð) 5.2.2010 kl. 18:30

2 identicon

til hamingju með drenginn

Álfheiður (IP-tala skráð) 5.2.2010 kl. 18:35

3 Smámynd: Birna Dúadóttir

Til hamingju með strákinn

Birna Dúadóttir, 6.2.2010 kl. 10:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband