7.9.2008 | 14:13
Ljósnótt
Nú er skemmtilegur dagur að baki og kominn rólegur sunnudagur en við eigum samt eftir að fara í smá afmælisveislu hjá henni Bertu, hún hefur elst aðeins. Til hamingju Berta.
Í gær fengum við Gunna Grétars og Villu til okkar í heimsókn við bjuggum um þau í fellihýsinu. Þau höfðu þrjár yngismeyjar með sér sem er hver annari fallegri En Það er eitt sem hrjáir þetta fallega fólk að þau eru pínulitlir hrakfallabálkar eins og sjá má á eftirfarandi mynd Við fórum til Snorra og Guðrúnar með grillið okkar og þar var sko grillað og etið á sig gat, þar var lax í boði, kjúlli, lamb og naut allt dýrindissteikur. Frábært kvöld. Takk fyrir mig
Stjörnuspá
Naut: Þótt þú sért líklega ekki að vinna núna, færðu sýn á vinnuna sem hjálpar þér að skara fram úr í næstu viku. Í kvöld færðu ósk þína uppfyllta. Þetta eru galdrar!
Athugasemdir
Hafðu góðan dag.
Aprílrós, 7.9.2008 kl. 15:24
Stórglæsileg fjölskildumynd af Villu og co. Virkar flott á jólakortið. Knús
Elísabet Markúsdóttir (IP-tala skráð) 8.9.2008 kl. 00:24
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.