3.9.2010 | 09:09
Rennibrautin í Kópavogslaug :)
Jæja nú ætla ég að fara að rífa mig upp á rass.......... og gera eitthvað Byrjaði á því í morgun að fara aftur í Kópavogslaug það er örugglega komið ár frá því ég mætti þar síðast. Mikið var gaman að hitta þessa vitleysinga þá Kela og Steina. Mér leið bara eins og ég hefði ekkert farið En ekki komumst við í rennibrautina vegna þess að það átti eftir að þrífa stigann da. En gufan og frábær félagsskapur var meiri háttar. Geri þetta örugglega aftur næsta föstudag
Lífið hefur bara farið að ganga sinn vanagang undanfarið. Sem betur fer því annað er ekki hægt. Allt að komast í réttan farveg Fyrsta spilakveldið var í gær og reyndi ég eins og ég gat að vinna en Björg hafði vinninginn (hún þurfti sko að hafa fyrir því ) Takk skemmtilega fólk þið eruð frábær. Fyrsti saumó í næstu viku og svo stefni ég á að ganga eitthvað um hverja helgi (fer eftir veðri og fl. )
Stjörnuspá - 3. september 2010
fyrir 21. apríl 1966
Í dag er gott að leggja áherslu á vinnu, göngu eða aðra líkamlega hreyfingu. Þú ert kraftmikil og ákveðin, en einnig afslöppuð, og ytri aðstæður eru hagstæðar. Notaðu því tækifærið og vertu athafnasöm. Kýldu á mál sem þú vilt koma frá þér. (Tungl 60 gráður Mars
Athugasemdir
Rosalega flottar myndir í færslunni um Verslunarmannahelgina. Þarf að skoða landið betur.
ingó (IP-tala skráð) 3.9.2010 kl. 10:39
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.