19.5.2010 | 17:05
Pabbi og báturinn hans
Eitt er víst hann pabbi minn er ekki feigur. Því undan farið hefur hann verið að lenda í hverju óhappinu á fætur öðru. Um daginn keyrði hann útaf og slapp ómeiddur, svo datt hann í sjóinn í síðustu viku og svo toppaði hann þetta allt með að báturinn hans sökk eða hérumbil. Pabbi þetta er nóggggggggggggggg. Ég vil fá að hafa þig mikið lengur. En það er einhver verndarengill yfir kallinum því allt hefur farið mjög vel. Bíllinn skemmdur og báturinn líka en hann er á lifi og í góðu formi. Hér sjáið þið bátinn á leið í land ásamt björgunarsveitinni.
Athugasemdir
Það er eitthvað sem vakir yfir honum
Birna Dúadóttir, 20.5.2010 kl. 10:29
Tek undir með Birnu hér að ofan. .
Kveðja úr Seylunni.
seylubúarnir (IP-tala skráð) 20.5.2010 kl. 22:44
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.