Þá er komið að því

Jæja þá er komið að því. Ég er á leið til Sólarlanda. Ég fór síðast til Sólarlanda þegar ég var 12 ára þannig að ég reikna nú með að ýmislegt hafi breyst síðan þá hehe. Ég ætla til Tenerife með mömmu og ætlum við að vera þar í heilar 3 vikur. Mér finnst þetta svoldið langur tími núna en trúlega verður hann mjög fljótur að líða. Við mamma förum bara tvær en vonandi verður fleira fólk þar hehe svo ég á eftir að sakna ykkar, mismikið reyndar en sakna ykkar samt. Ég á nú eftir að setja eitthvað hér inn ef ég kemst í tölvu úti því án ykkar get ég ekki alveg verið. Njótið þess að vera til það ætla ég að gera. 

 Naut: Þér leiðist mikið vanagangurinn. Leitaðu nýrra leiða og nýr stíll fæðist. Þú skalt ekki hika við að standa á rétti þínum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Birna Dúadóttir

Skemmtu þér vel og komdu svo með smá sól í poka handa mér

Birna Dúadóttir, 6.10.2009 kl. 16:30

2 Smámynd: Aprílrós

Aprílrós, 8.10.2009 kl. 19:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband