Brúðkaup framundan

Manni er bara farið að hlakka til helgarinnar LoL Frumburðurinn InLove er að fara að gifta sig og Við erum eitthvað að hafa puttana í þessu. Trúlega höfum við smitast eitthvað af henni Birnu Sig. með púkaskap hehe Cool Tókum að okkur að koma brúðinni og co. í kirkjuna og svo keyra brúðhjónin í myndatöku og smá rúnt fyrir veislu. Eina sem þau vita er að þau verða keyrð ekkert annað. Bara gaman hjá mér. Ætla ég nú að heimsækja Birnu í búðina og fá hjá henni eitt og annað á eftir.

Svo er ég á fullu að undirbúa utanlandsferðina mína með mömmu. Hef ekki  farið á sólarströnd frá því ég var 12 ára gömul þannig að ég veit ekkert hvað ég er að  fara útí W00t Mamma er búin að kaupa fullt af smjöri svo ég brenni ekki og ég fór og keypti mér bikini. Þetta verður bara gaman. Hvað þarf maður að hafa með sér í svona ferð annað en góða skapið Tounge.

Naut: Fjölskyldumeðlimur þarf á hjálp þinni að halda. Leyfðu rómantíkinni að blómstra í lífi þínu. Mundu að allir eiga sína útgáfu af hamingju sama endinum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Birna Dúadóttir

Til hamingju með frumburðinn  Alveg rétt hjá þér, þú þarft bara bikini og góða skapið og smjörið með þér á sólarströnd

Birna Dúadóttir, 2.10.2009 kl. 08:35

2 identicon

ÉG púki !!! Hvaðan hefur þú það ;) Gangi ykkur vel og megið þið eiga yndislegan dag.

Birna Sigbjörnsdóttir (IP-tala skráð) 5.10.2009 kl. 09:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband