24.4.2009 | 17:22
Afmælið mitt
Ég átti afmæli 21 apríl og er það nú ekki frásögufærandi en mig langar að deila með ykkur smá þann dag Barnabarnið mitt hún Gulla (Guðlaug Sigurlaug) kom með mömmu sinni og áttum við frábæran dag saman hún fór með okkur í búðina og hjálpaði svo ömmu sinni að gera restina klára fyrir kökurnar þ.e. að þeyta rjómann. Henni þótti hann svo góður að hún fékk að sleikja hrærurnar og fékk þær báðar. Svo ætlaði hún að sýna mömmu sinni allt saman og lallaði af stað og en datt um eitthvað og rjóminn fór að mestu í gólfið. Hún var svo sár en vildi samt ekki sleppa hrærunum til að fá meira. Þau eru svo yndisleg þessi kríli.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.