24.4.2009 | 17:52
Matarboð og sumarbústaður og GLEÐILEGT SUMAR
Nú buðu Magga og Kiddi í matarboð ekki seinna vænna nema maður skreppi til spánar til að snæða hjá þeim því þau eru að fara til Spánar í byrjun maí og ætla að vera þar í allt sumar og koma heim með haustinu Ég ætla að vera svo æðisleg að passa húsið og hundana þeirra. Bara gaman. Þau eru alltaf höfðingjar heim að sækja og félagsskapurinn var frábær eins og venjulega. Við vorum 7 sem snæddu saman að þessu sinni. Takk fyrir öll sömul þetta var æðislegt. Ég skrapp svo í sumarbústað í Grímsnesi og er að læra að slappa af og tókst það nokkuð vel. Fórum reyndar í rúmlega 2 tíma göngu í gær en annars var maður bara frekar tímalaus. Í heita pottinum og slappa af. Batnandi fólki er best að lifa þetta tókst loksins að ég geti bara gert akkúrat ekki neitt nema notið þess að vera til Svo verður skroppið í Keflavíkina í kvöld að kíkja á hana Birnu skutlu sóló konu. Bara gaman og meira stuð. Njótið kvöldsins það ætla ég að gera.
Athugasemdir
Góða helgi elskuleg og njóttu þess að vera til ;)
Aprílrós, 25.4.2009 kl. 02:10
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.