9.4.2009 | 15:31
Gleðilega páska
Nú eru komnir páskar með þessu líka flotta veðri. Vaknaði snemma eins og alltaf það virðist ekki skipta málið hvenær maður fer að sofa Var á smá skralli í gær. Var boðið af Nordicsea ehf. út að borða og var það svakalega gaman. Takk fyrir mig.
Ég fór út í góða veðrið. Skrapp í tvo tíma upp í Heiðmörk og svo í heitapottinn í Kópavogslauginni á eftir. Svo var ég eitthvað svöng á eftir að ég fór í ísbúð og fékk mér bragðaref mmmmmm það er ekkert smá langt síðan ég hef fengið mér bragðaref. Njótið góða veðursins. Nóg af gönguferðum á næstunni. Við förum á Akrafellið á morgun og svo tröppurnar í turninum á laugardag og bröns á eftir.
Stjörnuspá
Naut: Þrátt fyrir að jákvætt viðhorf stuðli að árangri er nauðsynlegt að vera með báða fætur á jörðinni. Sinntu máli sem leitar sterkt á þig nú um stundir.
Athugasemdir
Dugleg ertu kona góð ;)
Góða ferð á Akrafellið og tröppurnar í turninum ;)
Aprílrós, 10.4.2009 kl. 00:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.