5.9.2008 | 09:19
Draugabanar
Lætin halda áfram þrátt fyrir margar tilraunir á heimilinu en hafði nú samband við Sálarrannsóknarfélagið eftir ábendingu vinkonu og hún gat gefið okkur mörg góð ráð sem við fórum eftir í gær og gerðum nú draugana frekar reiða sem er bara gott (okkur finnst það nú samt ekki
) en eftir vinnu í dag förum við til miðils sem hefur hjálpað fólki í svona stöðu. Strákurinn svaf lítið í nótt en þetta var öðruvísi en venjulega þannig að það sem við gerðum í gær er að virka eitthvað. En mikið er drengurinn minn nú orðin þreyttur
. Ég þorði ekki að leyfa honum að keyra í vinnuna svo ég fór bara snemma og keyrði hann. Svo er nóg að gera hjá mér í atvinnuviðtölum og er einmitt að fara í eitt á eftir. Mjög spennandi starf og gaman að vita hvað kemur út úr því
vonandi þarf maður ekki að bíða lengi því mér líst bara ljómandi á þetta verkefni. Hafið góðan dag




Athugasemdir
gost busters
Margrét M, 5.9.2008 kl. 13:42
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.