17.5.2008 | 11:04
Stolt móðir
Gunnþór var í Sveinsprófi í Húsasmíðum í vikunni og stóðst það með stæl . Þannig að hann útskrifast sem Húsasmiður í næstu viku. Ekkert smá stolt af honum. Til hamingju Gunnþór
Svo þegar búið var að afhenda einkunnir og þeir máttu fara heim með stykkin þá buðum við honum út að borða. Anna María var að fara á námskeið þannig að hún komst ekki með en Gulla og Gunnþór fóru með okkur Gunna á Veitingarstaðinn Mamon sem var flottur matur og gott að vera. Síðan fórum við heim með Gunnþóri því Gulla var orðin svo þreytt og þar fengum við kaffi og koníak . Takk fyrir mig Gunnþór.
Svona er þau flott feðginin. Gunnþór og Guðlaug Sigurrós. Ég er sko ekkert smá stolt mamma og amma
Stjörnuspá

Athugasemdir
til hamingju með strákinn
sjáumst fljótlega
Álfheiður (IP-tala skráð) 18.5.2008 kl. 12:55
til hamingju með drenginn
Margrét M, 18.5.2008 kl. 16:58
til lukku
Kristberg Snjólfsson, 18.5.2008 kl. 17:17
Hann er ekki ónýtur drengurinn þinn það er alveg deginum ljósara,og til hamingju með allt saman Kristín mín.
Úlfar Þór Birgisson Aspar, 18.5.2008 kl. 19:05
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.