4.5.2008 | 11:56
Fallegur laugardagur
Vaknaði snemma eins og venja mín er á laugardögum var komin út að hlaupa um 8. Bara yndislegt
eftir hádegi var farið að tékka á fellihýsinu hvort það færi ekki að verða tilbúið og viti menn það átti bara eftir að gera eitthvað með nefhjólið og síðan tilbúið þannig að við förum á mánudag eftir vinnu og náum í gripin. Stefnt er á útilegu um næstu helgi. ÍHA. Skruppum við svo á Selfoss að kíkja á Gunnþór og Önnu Maríu og buðu þau okkur í mat. Alltaf gaman að heimsækja þau, enda höfðingjar heim að sækja. Gulla litla var nú aðal manneskjan á svæðinu eins og venjulega
Frábær dagur í alla staði.
Stjörnuspá

Athugasemdir
það er sko komin útilegu tími ... vonumst eftir góðu veðri um næstu helgi ........
Margrét M, 5.5.2008 kl. 15:25
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.