16.3.2008 | 19:43
Laugardagur jeje
Vaknaði snemma eins og venjulega. Frábært veður, var komin út rúmlega átta og tók laaaangan göngutúr og klifraði upp á fyrsta "fjallið" þetta árið. Þetta er að sjálfsögðu stóri hóllinn sem er fyrir utan hjá okkur Og svo tók ég ákvörðun að þetta árið verður farið upp á 7 fjöll eða fell. Í fyrra fór ég bara á 2 stk. en það skal verða breyting á. Tók myndir á hólnum stóra hehe. Frábært veður, frábær dagur. Með matarboð um kveldið sem lukkaðist bara vel. Lambið svíkur engan og ekki heldur sósan hans Gunna. Gunnþór og Anna María með dúlluna litlu gistu hjá okkur bara gaman.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.