7.2.2008 | 16:20
Veður.. Veður..
Vanga veltur um veður. Það er svo gaman að fylgjast með fréttum af veðri þessa dagana, nóg af snjó og látum hehe. Ég man þegar ég var að velta því fyrir mér að flytja í Reykjanesbæ þá var sagt við mig að brautin yrði aldrei ófær og svo væri svo sjaldan snjór að þetta yrði ekkert vandamál. Og svo HVAÐ ég man ekki eftir svona miklum snjó frá því ég var krakki. Í morgun þurfti maður að fara í stígvél og galla til að moka af bílnum sem var á kafi eða þannig. Jói býr í Grindavík og er búin að vera veðurtepptur allavega tvisvar, ég einu sinni. Þetta kallar maður vetur Spáir illa á morgun en þá á að vera rigning. Ætli maður komist nokkuð heim eftir frænkupartýið Hafið góðar stundir þar til næst
Athugasemdir
Takk fyrir innlitið í gær, alltaf gaman að fá ykkur skötuhjúin í heimsókn
Kristberg Snjólfsson, 8.2.2008 kl. 09:12
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.