9.12.2007 | 21:20
Restin af helginni
Í kvöld vorum við búin að bjóða Kidda og Möggu í mat og var það mjög gaman. Var hann Kiddi að kenna Gunna að grilla naut og gekk það mjög vel nema þeir voru ekki alveg sammála um hversu vel steikt það skildi vera en máltíðin heppnaðist mjög vel. Alltaf gaman að fá þau í heimsókn. Frábært fólk Nú er ég búin að baka fyrir jólin og þá finnst mér oft að þau séu komin, alltaf kökur á borðum (frekar hættulegt) skemmtilegur tími framundan
Athugasemdir
Takk fyrir góðan mat, en það þarf ekkert að ræða það hvernig á að steikja nautakjötið Gunni lærir þetta með tímanum en eins og gefur að skilja þá hef ég að sjálfssögðu rétt fyrir mér
Kristberg Snjólfsson, 9.12.2007 kl. 22:06
þetta var bara yndislegt .. takk fyrir mig og mína ..
Margrét M, 10.12.2007 kl. 08:37
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.