7.11.2007 | 14:22
Í ferðalag liggaliggalái
Jæja nú ætla ég að skreppa austur á dag fer fyrst á Höfn í Hornafirði að heimsækja ömmu Guðný. Hún verður 90 ára á sunnudaginn pældu í því og enn er hún hress og kát. Alveg frábært eintak. Hún er besta amman sem ég hef átt hehe. (stal henni nefnilega) Að vera orðin þetta gamall og geta notið þess að vera til, gantast og haft gaman af hlutunum er frábær eiginleiki sem ég ætla að tileinka mér í framtíðinni. Ekki vorkenna mér af því ég er orðin gömul og þreytt Svo þegar ég er búin að vera hjá ömmu ætla ég að fara á Djúpavog og hitta vini og kunningja. Kem með svaka skýrslu þegar ég kem til baka. Hafið það gott þangað til ég kem til baka og alltaf
Athugasemdir
Hva fara til ömmu þinnar ? eruð þið ekki á svipuðum aldri
Kristberg Snjólfsson, 7.11.2007 kl. 15:07
nei hún er aðeins yngri hehe en þú ert aftur á móti eldri en ég hehe
Kristín Jóhannesdóttir, 7.11.2007 kl. 15:09
Ekki vorkenna mér af því ég er orðin gömul og þreytt
segirðu: þú er sem sagt að segja að þú sert gömul og þreytt ef ég skil þig rétt
Margrét M, 7.11.2007 kl. 15:30
Ég var að tala um "er frábær eiginleiki sem ég ætla að tileinka mér í framtíðinni. Ekki vorkenna mér af því ég er orðin gömul og þreytt" ég get nú ekki sagt að ég sé orðin gömul og þreytt unglingurinn hehe
Kristín Jóhannesdóttir, 13.11.2007 kl. 09:12
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.