22.10.2007 | 14:19
Góð helgi
Vonandi hafa allir haft góða helgi eins og ég. Náði að slappa vel af og hafa það huggulegt (dugleg stelpa). Á laugardeginum þá fór ég í ræktina þegar ég vaknaði og ljós á eftir fór svo heim og tók húsið í gegn, skúraði og gerði fínt. Síðan fórum við Gunni í búðina og versluðum fyrir kveldið því við áttum von á gestum. Kveldið var vel heppnað góður matur og félagsskapurinn flottur Sunnudagurinn var líka góður, skruppum að hitta Gísla og Kollu og fengum kaffi og konfekt þar. Svona rólyndis helgi í alla staði nema tölvan okkar stoppaði (hef ekki hugmynd hvað að henni er) en hún er komin í viðgerð Hafið góðar stundir þar til næst
Athugasemdir
hvenær slappaðirðu vel af, var það þega þú fórst í búðina eða í ræktina eða þega þú varst að þrífa
Margrét M, 22.10.2007 kl. 16:14
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.