19.10.2007 | 09:55
Ömmubarnið hún Guðlaug
Já við skruppum í heimsókn til Gunnþórs og Önnu Maríu í gær og var litla daman í þvílíku stuði hún er farin að fá hálfa teskeið af graut daglega og þá fór nú litla daman sko aldeilis að taka gleði sína. Ég fékk að gefa henni restina af pelanum í gær og hún sko ældi á ömmu sína og kúkaði heljarinnar mikið (fór nú ekkert á mig hehe) og svo fór hún að þenja raddböndin í þessu líka svaka stuði. Þvílíkur munur að sjá hana núna, skríkjandi og svo hissa á því að þessi hljóð skuli koma frá henni .
Jói er búin að fara í sneiðmyndatöku og nú er aftur bið eftir þeirri niðurstöðu. Alltaf að bíða og bíða og bíða. Hafið góðan dag
Athugasemdir
Gaman af litlu krílunum
Kristberg Snjólfsson, 19.10.2007 kl. 15:04
Margrét M, 19.10.2007 kl. 15:57
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.