Letibloggarar :)

Það er ekki hægt að segja annað en maður sé einn af þessum letibloggurum sem verið er að tala um þessa dagana Tounge En það sem ég hefði mest langað til að skrifa hér á bloggið undanfarið er kannski ekki alveg prenthæft fyrir viðkvæma Angry 

Ég er búin að ganga í gegnum mikla sorg undanfarið og skildi ég ekkert í þessu fyrst hvað var að gerast fyrir mig. Bara grét og grét og fann svo mikið til í hjartanu mínu. Ég hef nú fyrr hætt með strák þannig að ég ætti nú ekki að fara yfir um þess vegna. Var svo heppin að komast (loksins) að hjá sálfræðingi sem (ég er búin að vera að bíða eftir síðan í feb), hún sagði mér að ástarsorg væri  kannski partur  af þessu en það væru aðrir einstaklingar sem ég væri að syrgja bæði dánir og lifandi. Núna þegar maður er búin að vera taka svona mikið til í pokanum sínum þá fattar maður allt í einu að maður hefur fullt af tilfinningum sem maður þekkir ekki og ég þurfti hjálp til að fatta þær.  Núna sé ég að ef ég hefði ekki haft svona góða "vini" í kringum mig frá seinnipart júní til 10 ágúst þá væri ég ekki hér á meðal ykkar.  

Núna er ég öll að koma til Wink farin að finna fyrir gleðinni í hjartanu aftur. Þarf bara að passa að umgangast rétta fólkið fyrir mig á meðan ég er svona viðkvæm og brothætt.

Gunnþór, Jóhannes Mundi, Anna María, Guðlaug Sigurrós, Ólöf Þóra, mamma og allir mínir bestu vinir sem ekki gáfust upp á vælinu í mér og vöktuðu mig á meðan ég gekk í gegnum þessa raun. Ég á ykkur mitt líf  að þakka.

 Stjörnuspá - 20. ágúst 2010
fyrir 21. apríl 1966

Hugsun þín er jákvæð og móttækileg og andrúmsloftið einkennist af bjartsýni. Þér bjóðast ýmis tækifæri og hlutirnir hreyfast vel áfram. Þetta er góður dagur til að ferðast eða byrja á máli sem þú vilt að verði stórt. Nú er gott að læra og pæla, m.a. í útlöndum og framandi málum. (Sól 60 gráður Júpíter)


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Birna Dúadóttir

Þú ert snilldar leti bloggari sæta

Birna Dúadóttir, 20.8.2010 kl. 11:28

2 identicon

Þegar þú lítur næst í spegilinn horfðu þá á þessa fallegu konu og minntu hana á að hún er FRÁBÆR

Þykir mjög vænt um þig Stína mín, þín vinkona Ella Stína.

Ella Stína (IP-tala skráð) 20.8.2010 kl. 16:18

3 identicon

knús á þig vinkona, allt hefur sinn tíma, en þú ert kjarnorkukona.

Álfheiður (IP-tala skráð) 22.8.2010 kl. 00:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband